Nokkrir punktar um Skólasel og ný verðskrá!

Skólasel er vistun fyrir börn í 1.-4. bekk eftir að skóla lýkur til 16.00 alla daga. Á föstudögum er lokað.

Á starfsdögum er Skólaselið lokað. Aðrir dagar verðir auglýstir á heimasíðu Flúðaskóla.

Á Skólaseli eru skráð 30 hress börn.

Stefna okkar á Skólaseli er að leyfa börnunum að vera þau sjálf, sem mest í frjálsum leik og sköpun, hvort sem það er inni eða úti, og án mikillar pressu og áreitni frá starfsfólki. Við höfum að sjálfsögðu ramma utan um starfið til að styðjast við og ég ekki séð annað að þetta virki vel á alla.

Við ætlum að stefna á að hafa mikla útiveru í vetur og því legg ég áherslu á að þau komi með góðan og hlýjan útifatnað. Ef um leiðinlegt veður er að ræða notum við inniaðstöðuna og gerum eitthvað skemmtilegt þar.

Nokkrir punktar um hvað við erum að gera

Útivist=  Á leikvelli, göngu/vettvangsferðir og höfum að sjálfsögðu poka með í för og tínum allt rusl sem á vegi okkar verður.

Frjálsleikur= Hlutverkaleikur, spil, lestur, perlur og allt það skemmtilega sem okkur dettur í hug.

Sköpun= Myndlist, tónlist, dans, leikrit, leir ofl.

Verðskrá 

Klukkutíminn=245kr

Síðdegishressingin= 88kr

Nýtt blogg :)

Hæ hó!

Í skólaseli þetta árið eru skráð 30 börn og er því mikið fjör hjá okkur. Við förum öðru hvoru niður í íþróttahús á fimmtudögum og vekur það alltaf lukku. Aðalskemmtunin er að fara í vink vink í pottinn með slökkt ljós, hópleiki eða frjálsan leik. Þá byggja þau heilu húsin úr hinum ýmsu hlutum og dýnum. Veðrið hefur heldur betur leikið við okkur og því höfum við verið mikið úti. Vonandi heldur það áfram en við erum búin að panta snjó… og mikið af honum ;) Vonandi getum við farið oftar en einu sinni út að renna okkur eins og í fyrra.

Inni erum við oftast í frjálsum leik. Krakkarnir búa til heilu verslanirnar, nuddstofu, hárgreiðslustofu, bílaverkstæði og margt fleira. Einnig er alltaf vinsælt að fara í tölvuna, perla, leira og teikna.

Í dag tókum við smá forskot á jólasæluna og föndruðum jólagjafir og svo ætlum við að nota næstu skólaselsdaga til að útbúa skraut til að skreyta skólaselið og koma okkur í jólagírinn.

Í lokin langar mig að minna á nokkra punkta

-hafa hlý föt, vettlinga, húfur og ullarsokka í töskunni á mánudögum og fimmtudögum því við ætlum okkur að vera úti

-láta mig eða skólaritarann vita ef einhverjar breytingar verða á vistuninni t.d. vegna íþrótta og ef börnin eru að fara heim með einhverjum fyrir eða eftir skólasel.

Kveðja Marlín umsjónarmaður Skólasels

 

tíminn líður hratt

Það er nú ýmislegt brallað á Skólaselinu um þessar mundir.

Við fórum í sílaveiði í enda október vopnuð háfum, fötum og ruslapokum. Ferðinni var heitið að ánni fyrir aftan sundlaugina. Krakkarnir stóðu sig rosalega vel að skiptast á að nota háfanna og það veiddust nokkur síli. Sum voru lítil en önnur stór og eitt var með mjög stór eyru að sögn barnanna. Þau þekktu alveg sín síli útaf einhverjum einkennum sem þau sáu. Við týndum heilmikið af rusli í ferðinni okkar og margir voru hálf hneykslaðir á hversu illa er gengið um náttúruna okkar. Við fundum tóma gosflösku og eru nokkrir að undirbúa flöskuskeyti. Krakkarnir áttu frekar erfitt með að trúa að áin liggi ekki útí sjó því þau vildu að þetta bærist til útlanda :)

Við skoðuðum hverinn vel og kíktum undir steina í leit af skordýrum. Við fundum orma og snigla og einhverja pöddu sem við náðum ekki að nefna.

Þegar við komum heim í skólaselið bjuggu sumir til boga og örvar undir handleiðslu Hjalta og var það mikið sport að leika með. Flestir fóru heim með sílið sitt og reyndu að halda í því lífi.

Tvær stelpur í Selinu eru alveg á því að það sé músagangur og eru því búnar að búa til músagildru úr perluspjöldum, litlum kössum og bandi. Það veiddist engin mús svo það var prófað að setja pínulítinn ost í gildruna en ekkert hefur gerst enn. Við bíðum bara spennt.

Það eru komnar rólur og belgir á útileiksvæðið og hefur það vakið mikla lukku. Það var kominn tími á það og krakkarnir nýta sér vel þessi nýju leiktæki.

Við fórum á bókasafnið um daginn og náðum okkur í nokkrar bækur sem við getum skoðað í hvíldarstund og svo er ég að lesa eina bók fyrir þau á meðan hressingin er.

Framundan er bara að halda áfram að hafa gaman og jafnvel fara að huga að skreytingum fyrir jólin. Við ætlum að taka virkan þátt í aðventunni með tilheyrandi skemmtilegheitum og föndra.

Ég vil taka fram að ef nemendur ætla heim með einhverjum öðrum á Skólaseli verður að fylgja miði með eða hringja í ritara skólans. Það á einnig við ef krakkar mæta ekki í skólaselið verður að láta vita.

Kveðja Marlín og krakkarnir á Skólaselinu

Starfsdagur, Skólaselið opið!

Miðvikudaginn 11. nóvember er starfsdagur í Flúðaskóla en Skólaselið verður opið eins og venjulega fyrir börn með vistun þann daginn. Endilega látið mig vita ef börnin ykkar verða ekki í selinu.

kveðja Marlín

Fjör hjá okkur

Þessa dagana erum við mest að leika okkur úti og njóta veðurblíðunnar eins og hægt er. Það er farið að kólna heldur mikið og því vil ég minna á að láta börnin koma með hlýjan fatnað í skólann og í Skólaselið. Krakkarnir leika sér mest í leikjum í sandkassanum, búðar- og bakarísleikur eru þá vinsælastir.

Inni við erum við mest í frjálsum leik en sumir eru þó byrjaðir að sauma í, telja út myndir, og aðrir eru að búa til púða. Það er einnig verið að fjöldaframleiða málningarlistaverk sem eru komin upp í eldhúsinu okkar.

Stína kokkur var svo yndisleg að gefa okkur dót á Skólaselið. Við fengum dúkkur, dúkkuföt og dót, kubba, allskonar kalla og ýmislegt fleira. Við þökkum kærlega fyrir þetta.

Ef þið lumið á einhverju fleira dóti eða gömlum fötum væri vel þegið að fá gefins :)

Kveðja Marlín og krakkarnir á Skólaseli

Bloggsíðan okkar er komin í gang

Núna er skólastarfið komið á fullt hjá krökkunum og líka okkur í Skólaselinu :) Ég ætla að nota þetta blogg til að leyfa ykkur að fylgjast með starfi vetrarins og vera dugleg að skrifa hvað við erum að bralla. Hér ætla ég einnig að setja upp myndaalbúm sem þið ættuð endilega að kíkja á.

Síðan er ennþá í vinnslu en verður komin á fullt skrið innan skamms.

Kær kveða Marlín og krakkarnir á Skólaseli