Archive for nóvember, 2011
Nokkrir punktar um Skólasel og ný verðskrá!
Skólasel er vistun fyrir börn í 1.-4. bekk eftir að skóla lýkur til 16.00 alla daga. Á föstudögum er lokað.
Á starfsdögum er Skólaselið lokað. Aðrir dagar verðir auglýstir á heimasíðu Flúðaskóla.
Á Skólaseli eru skráð 30 hress börn.
Stefna okkar á Skólaseli er að leyfa börnunum að vera þau sjálf, sem mest í frjálsum leik og sköpun, hvort sem það er inni eða úti, og án mikillar pressu og áreitni frá starfsfólki. Við höfum að sjálfsögðu ramma utan um starfið til að styðjast við og ég ekki séð annað að þetta virki vel á alla.
Við ætlum að stefna á að hafa mikla útiveru í vetur og því legg ég áherslu á að þau komi með góðan og hlýjan útifatnað. Ef um leiðinlegt veður er að ræða notum við inniaðstöðuna og gerum eitthvað skemmtilegt þar.
Nokkrir punktar um hvað við erum að gera
Útivist= Á leikvelli, göngu/vettvangsferðir og höfum að sjálfsögðu poka með í för og tínum allt rusl sem á vegi okkar verður.
Frjálsleikur= Hlutverkaleikur, spil, lestur, perlur og allt það skemmtilega sem okkur dettur í hug.
Sköpun= Myndlist, tónlist, dans, leikrit, leir ofl.
Verðskrá
Klukkutíminn=245kr
Síðdegishressingin= 88kr
Nýtt blogg :)
Hæ hó!
Í skólaseli þetta árið eru skráð 30 börn og er því mikið fjör hjá okkur. Við förum öðru hvoru niður í íþróttahús á fimmtudögum og vekur það alltaf lukku. Aðalskemmtunin er að fara í vink vink í pottinn með slökkt ljós, hópleiki eða frjálsan leik. Þá byggja þau heilu húsin úr hinum ýmsu hlutum og dýnum. Veðrið hefur heldur betur leikið við okkur og því höfum við verið mikið úti. Vonandi heldur það áfram en við erum búin að panta snjó… og mikið af honum
Vonandi getum við farið oftar en einu sinni út að renna okkur eins og í fyrra.
Inni erum við oftast í frjálsum leik. Krakkarnir búa til heilu verslanirnar, nuddstofu, hárgreiðslustofu, bílaverkstæði og margt fleira. Einnig er alltaf vinsælt að fara í tölvuna, perla, leira og teikna.
Í dag tókum við smá forskot á jólasæluna og föndruðum jólagjafir og svo ætlum við að nota næstu skólaselsdaga til að útbúa skraut til að skreyta skólaselið og koma okkur í jólagírinn.
Í lokin langar mig að minna á nokkra punkta
-hafa hlý föt, vettlinga, húfur og ullarsokka í töskunni á mánudögum og fimmtudögum því við ætlum okkur að vera úti
-láta mig eða skólaritarann vita ef einhverjar breytingar verða á vistuninni t.d. vegna íþrótta og ef börnin eru að fara heim með einhverjum fyrir eða eftir skólasel.
Kveðja Marlín umsjónarmaður Skólasels