Trjáfígúrur

Það er alltaf svo gaman að sjá ný verk fæðast hjá nemendum.  Ég hef sérstaklega ánægju af því að sjá hvað nemendur geta skapað úr trjágreinum.  Í þessu verkefni hjá 2.-3. bekk hafa margar ólíkar fígúrur fæðst.  Eina sem kennarinn krefst er að samsetningarnar séu á þá leið að borað sé gat í trjágreinina/lurkinn og tálgaður sé endinn á grein sem er síðan felld í gatið.

Annarskil

Nú er komið að annarskilum og eru þá hópaskipti.  Krakkarnir sem voru að klára smíði fara í myndmennt til Sigríðar Helgu og ég fæ hópinn sem Helena handavinnukennari var með.  Krakkarnir hafa unnið í vetur verkefni úr trjágreinum,gert lyklakippu úr horni,hreyfileikfang og nú undir lokin gerðu krakkarnir hljóðfæri.  Hljóðfærið var gert í samvinnu við Helgu Kolbeinsdóttur tónmenntakennara.  Ég verð að viðurkenna að ég veit ekki hvað hljóðfærið heitir en það heyrist ansi hátt í því .  Vona að foreldrar verði ekki þreytt á þessum hávaða :)   Hljóðfærið taka nemendur með sér heim í vor en þá hafa allir hópar gert slíkt og væntanlega notað það í tónmenntatíma hjá Helgu.

Hrunaréttir

Núna í haust unnu 4.-5. bekkur saman að „réttarverkefni“.  Þetta samvinnuverkefni var unnið af nemendum sem voru í verkstæði í myndmennt,handavinnu og smíði.  Nemendur bjuggu til stórt veggteppi með mynd af Hrunaréttum.  Í réttunum eru náttúrulega kindur og hestar.  Einnig er smá umfjöllun um mörk á teppinu.  Áhugasamir geta komið í skólann og kíkt á teppið sem hangir inn í matsal.

Útikennsla

Í útikennsluvikunni fór ég út með strákahópinn og veltum við fyrir okkur hvort við gætum ekki notað trjágreinarnar sem eru á skólalóðinni.  Hver nemandi fékk lyklakippuhring og valdi sér greinarbút sem hægt væri að nota á lyklakippuna.

Auto DraftHaust 2011

Í vetur verður 1. bekk skipt í tvo hópa.  Stelpur í öðrum og strákar í hinum.  Krakkarnir eru að leggja l0kahönd á svokallaða endatrésmynd eða mósaikmynd.  Þessi mynd er gerð þannig að kennari sagar þunnar sneiðar af endatré og brjóta krakkarnir þessar sneiðar niður í búta og mála bútana.  Síðan fær hver nemandi krossviðsplötu sem hann pússar með grófum og fínum sandpappír.  Að lokum búa nemendur til mynd úr endatrésbútunum og líma þá  á krossviðsplötuna.

1. bekkur1. bekkur

Núna er krakkarnir í 1. bekk komnir í smíði.  Þetta er afar duglegur og kraftmikill hópur sem þarf að hafa nóg fyrir stafni.  Það kom mér mjög á óvart hversu fljótt þau öll náðu tökum á útsögunarsöginni.  Núna eru nemendur búnir að saga út húsin sín.  Húsin voru síðan öll fest saman með vír og eru inn í 1. bekkjar stofunni.

Að rétta af fjöl

Eitt af þeim verkefnum sem 5. bekkur hefur fengist við er að læra að rétta af fjöl.  Nemendur byrja á því að teikna hugmyndir af brauðbrettum og velja þá hugmynd sem þeim lýst best á og búa til snið.  Næst saga þeir ákveðinn bút af furu (sem hentar sniðinu) síðan þurfa nemendur að rétta þessa fjöl með hefli.  Þessi vinna tekur oft töluverðan tíma því að nemendur þurfa að vera vel vakandi þegar þeir eru að hefla og vera með vinkillinn við hendina til að sjá hvort þeir séu ekki á réttri leið :) .  Þetta finnst mér vera mjög gott verkefni.  Nemendur læra þarna um  mikilvæga eiginleika viðarins og enda á því að fara með brauðbretti heim :D

SprellikarlarSprellikarlar

í 2.bekk hafa nemendur verið að ljúka við sprellikarlana sína.  Það er alltaf jafn skemmtilegt að sjá hversu ólíkar hugmyndir krakkarnir hafa og útkoman hefur ótrúlega skemmtileg.  Í 2. bekk er aðaláherslan lögð á útsögun og að nemendur nái góðri tækni í henni.  Nú þegar þetta er skrifað eru nánast allir búnir með karlana sína og eru því komnir í það sem við köllum „frjálst“.  Það þykir mjög spennandi og er því misjafnt hvað nemendur viðhafast þessar 1-2 síðustu vikur í smíðinni :)

Tálgun

Við byrjuðum á því í haust að fást við tálguverkefni og urðu fuglar fyrir valinu í þetta sinn.  Nemendur skoðuðu myndir af fuglum og völdu sér síðan einn fugl til að tálga.  Nemendur í 4. bekk gerðu fuglshaus sem við settum á pinna en þá er komið sniðugt verkfæri til að athuga hvort kaka sé bökuð.  Þ.e. maður stingur pinnanum í kökuna og ef deigið festist ekki á pinnanum er kakan bökuð.  Nemendur í 5. bekk gerðu hins vegar fugla sem þau settu á stall eða grein.

6.-7. bekkur6.-7. bekkur

Í haust byrjuðu nemendur á því að læra að spegilkljúfa með exi.  Allir lærðu að beita öxinni og notuðum við ösp sem hafði verið felld hér á staðnum.  Nemendur fengu síðan einn geirung og tálguðu úr honum smjörhníf.