6.-7. bekkur6.-7. bekkur

Í haust byrjuðu nemendur á því að læra að spegilkljúfa með exi.  Allir lærðu að beita öxinni og notuðum við ösp sem hafði verið felld hér á staðnum.  Nemendur fengu síðan einn geirung og tálguðu úr honum smjörhníf.

Trjábox

Eins og allir hópar í smíði þá vinna 6.-7. bekkur að hlut úr skóginum.  Þessi hópur gerir box úr trjábol eða öflugri grein.  Fyrir utan stofuna hjá mér er ég alltaf með tré t.d. birki,ösp,víði og fleiri trjátegundir.  Nemendur gerðu boxið sitt úr birki.  Boxin eru oft mjög ólík og eru lokin eru útfærð á [...]

Rafmagnsverkefni

Nemendur 6.-7. bekkjar vinna öll rafmagnsverkefni.  Sum þeirra náðu að byrja á verkefninu í 5. bekk og eru að ljúka því á þessarri önn.  Krakkarnir velja um rafmagnsverkefni.  Þau geta t.d. gert raftening,dyrabjöllu,sparibauk eða ljós.  Hér til hliðar er mynd af rafmagnssparibauk sem stúlka í 7.bekk var að klára í síðustu viku.  Baukurinn virkar [...]

Tifsagarverkefni í 6.-7. bekk

Í 6. og 7. bekk legg ég mikla áherslu á tifsagarvinnu.  Nemendur fá frjálsar hendur með að velja tifsagarverkefni.  Vil ég bara að krakkarnir séu orðnir mjög öryggir í vinnu með sögina og geti skipt um blað í henni sjálf.  Við erum með tvær tifsagir í stofunni og er skipt um blöð í þeim á [...]

Útikennsluvika og fleiraÚtikennsluvika

 

Í útikennsluvikunni fóru 6.-7. bekkur út að safna efnivið í engla.  Við fórum út í miklu myrkri en snjórinn lýsti ótrúlega mikið upp.  Englagerðin gekk vel og krakkarnir mjög dugleg að vanda.