Fugl mánaðarins

Posted in Uncategorized on febrúar 2nd, 2012 by kristinerla — Be the first to comment!

Við drógum í dag úr réttum lausnum á fugli mánaðarins sem var að þessu sinni Hrafninn. Nemandi í 1.bekk Guðrún Lilja Árnadóttir og Brynja Sólveig 7. bekk voru vinningshafar að þessu sinni en Guðríður Þórarinnsdóttir var dregin út úr hópi starfsmanna.

Fugl desembermánaðar

Posted in Uncategorized on desember 8th, 2011 by kristinerla — Be the first to comment!

Fugl desembermánaðar

Fugl mánaðarins er lítill fugl af orraætt (tetraonidae), um 31–35 cm að lengd

Hann er staðfugl og verpir á heimskautasvæðum og norðlægum slóðum,  á Íslandi og Norður-Ameríku,  á Grænlandi,  á heiðum, fjalllendi og á túndru.

Fuglinn er sérstakur meðal fugla að því leyti að hann skiptir um hluta fjaðurhams þrisvar á ári. Breytir um lit eftir árstímum, á sumrin og haustin er hann brúnleitur  með svörtum flikrum, í vetrarbúning eru bæði kynin allhvít með svart stél.

Karlfuglinn  helgar sér óðal í lok apríl og kvenfuglinn kemur tveimur til þremur vikum síðar. Kvenfuglinn verpir að jafnaði 12 eggjum. Útungunartíminn er um 3 vikur og ungarnir yfirgefa hreiðrið strax. Þeir fylgja móður sinni eftir í 6 – 8 vikur.

Fuglinn  er jurtaæta, hann lifir á blöðum holtasóleyjarinnar, kornsúrulaukum, krækilyngi (ber), aðalbláberjalyng (greinaendar, ber), birki (reklar, blaðbrum), grasvíðir og fleiri jurtum.

Fugl mánaðarins er algengur um allt land. Hann er staðfugl en ferðast innanlands utan varptímans. Yfir varptímann er hann algengar í móum, mýrum og kjarrlendi. Á veturnar halda þeir  til fjalla og upp á heiðar en þeir eru einnig í hraunum og kjarrlendi.

Ein er upp til fjalla,
yli húsa fjær,
út um hamrahjalla,
hvít með loðnar tær.
Brýst í bjargarleysi,
ber því hyggju gljúpa,
á sér ekkert hreysi
       útibarin ________

Útikennsludagar

Posted in Uncategorized on nóvember 24th, 2011 by kristinerla — Be the first to comment!

Útikennarafundur verður hjá kennurum næsta miðvikudag.  Þá lætur stýrihópur kennara vinna verkefni eftir hugmyndum sem við fengum á ráðstefnunni í Malmö.  Dagana 7.-9.desember verða útidagar í Flúðaskóla.  Þessa daga færa kennarar kennsluna sína út að einhverju leyti.  Mikilvægt er að nemendur komi vel klæddir í skólann þessa daga.

Útikennsluráðstefna í Svíþjóð

Posted in Uncategorized on nóvember 24th, 2011 by kristinerla — Be the first to comment!

Núna í október fóru þrír kennarar, sem halda utanum útikennslustarfið í Flúðaskóla, auk skólastjóra á útikennsluráðstefnu í Malmö í Svíþjóð.  Ráðstefnan var mjög skemmtileg og fræðandi.  Þarna fengum við ýmsar hugmyndir sem við getum nýtt okkur í skólastarfi okkar í Flúðaskóla.

Fugl mánaðarins

Posted in Uncategorized on nóvember 24th, 2011 by kristinerla — Be the first to comment!

Nú í vetur verðum við með getraun sem  við köllum „Fugl mánaðarins“.  Nemendur og starfsfólk fá upplýsingar um fugl og eiga þau að finna út hver fuglinn er.  Skila síðan miða með nafni fuglsins til ritara.  Við erum búin að draga úr tveimur getraunum.  Fyrri fuglinn var skógarþröstur og fengu Guðríður Þórarinsdóttir og Kjartan Helgason í 10. bekk sem unnu.  Seinni fuglinn var grágæs og vinningshafarnir voru Margrét Jónsdóttir og Kjartan Helgason 10. bekk.  Ný getraun verður hengd upp fljótlega í skólanum og vonum við að sem flestir taki þátt :)

Matjurtagarður

Posted in Uncategorized on september 22nd, 2011 by kristinerla — Be the first to comment!

Í þessari viku tókum við upp dálítið af grænmeti  úr matjurtagarðinum okkar   sem við plöntuðum í á vordögum.  Má þar nefna grænkál, sellerí, spergilkál, baunir, rófur og hvítkál, sem var vinælast.  Grænmetið bragðaðist afar vel í haustblíðunni.  Nemendur buðu leikskólakrökkunum upp á nýupptekið grænmeti og féll það í góðan jarðveg :)

Fugl septembermánaðar

Posted in Uncategorized on september 22nd, 2011 by kristinerla — Be the first to comment!

Fuglinn er af ætt spörfugla. Hann er farfugl, en þó er alltaf talsverður fjöldi af fuglum sem hefur vetursetu hérlendis. Hann er um 21 cm á lengd, tæp 70 grömm að þyngd og hefur um 34 cm vænghaf. Litur hans er nokkuð breytilegur eftir árstíðum, en hann er að jafnaði mógrænn að ofan og allt fram á höfuð og ljósleitur að neðan, í bland við dökkar langrákir og með áberandi ljósa rák ofan við augu. Fæturnir eru ljósbrúnir og nefið dökkt. Fuglinn er stóreygður, með oddhvasst og mjótt nef. Kjörlendi hans er kjarr-eða skóglendi eða jafnvel trjágróður í þéttbýli. Hann aflar sér aðallega fæðu á jörðinni, étur ýmis smádýr og ber á haustin.

Fuglinn verpir oft tvisvar til þrisvar sinnum á sumri. Eggin eru 4-6, blágræn að lit með rauðbrúnum dílum. Eggin klekjast út eftir um 10-14 daga. Báðir foreldrar sjá um að fæða ungana en þeir verða fleygir á 8-13 dögum en eru þó háðir foreldrunum með mat fyrst um sinn.

Nemendur geta svo skilað lausnum til ritara.  Foreldrar mega alveg hjálpa til við að finna rétta lausn :)   Dregið verður úr réttum lausnum 15. okt.

Fugl mánaðarins

Posted in Skógarverkefni on september 22nd, 2011 by kristinerla — Be the first to comment!

Í vetur ætlum við að vera með nýja getraun.     Getraunin fjallar um fugla og eiga nemendur og kennarar að finna út hver fuglinn er sem fjallað er um.  Munum við setja lýsinguna á fuglinum inn á bloggið hverju sinni.

Útidagar

Posted in Uncategorized on ágúst 17th, 2011 by kristinerla — Be the first to comment!

Í vor voru skógardagar/útidagar líkt og undanfarin ár.  Fengist var við ýmisleg fjölbreytt og skemmtileg verkefni í aldursblönduðum hópum.  Þau verkefni sem nemendur fengust við voru:  garðyrkja, hestafræði, rúgbrauðsgerð í hver, gamlar rímur, teikning með ýmsu úr skógarbotninum, súluskurður þar sem nemendur bjuggu til myndir (sem tengdust sögum úr heimabyggð) í trjábol með sporjárni, fjármörk og gamlir leikir.  Þessir dagar tókust mjög vel og voru nemendur áhugasamir í þessari vinnu.

Jurt apríl mánaðar

Posted in Uncategorized on mars 22nd, 2011 by kristinerla — Be the first to comment!

Jurtin er mjög algeng um allt land.  Hún vex einkum á melum, söndum og þurru mólendi.  Hún er mikið á hálendi Íslands og finnst víða upp í 1000 til 1100 m hæð í fjöllunum. Hæst hefur hún fundist á Tungnahrygg á Tröllaskaga í 1300 m hæð.